SAGAN Á bakvið NouNou
NouNou byrjaði sem lítil hugmynd árið 2023 sem varð að raunveruleika árið 2025 eftir endalausa hugmyndavinnu, prufur og breytingar.
Þetta byrjaði allt á einni stelpu sem var á leið til útlanda og fann engin sumarleg sundföt sem fóru stórum mjöðmum vel. Alls staðar voru sömu basic svörtu og hvítu sundfötin og ég fann aldrei neitt sem mér leið virkilega vel í.
Upphaflega ætlaði ég bara að hanna sundföt fyrir sjálfa mig, eitthvað sem væri flattering, þægilegt og sem ég þyrfti ekki að vera að laga á fimm mínútna fresti. En eftir að hafa séð hversu margar lentu í sama veseni ákvað ég að setja sundfötin í framleiðslu og deila þeim með öðrum.
Markmiðið með NouNou er að fólki líði vel í sundfötunum sínum. Að þú getir farið í þau, fundið fyrir sjálfsöryggi og einfaldlega notið þín án þess að vera stöðugt að hugsa um hvort toppurinn sé að færast til eða hvort eitthvað sitji ekki rétt.
Ég er bara venjuleg stelpa sem vill líða vel á ströndinni eins og öllum öðrum. Og það er ótrúlega sérstakt að fá að hanna sundföt sem svo margar elska líka. NouNou er svo miklu meira en bara sundföt. Þetta er eitthvað sem kemur beint frá hjartanu og ég er svo spennt að sjá hvert þetta ferðalag tekur okkur 🤍
Betra fyrir þig og betra fyrir umhverfið
Mynstruðu sundfötin okkar eru gerð úr Ecosense-efni sem er unnið úr endurunnnum plastflöskum. Með því að nýta efni sem þegar eru til dregur úr sóun og þörfinni fyrir ný hráefni. Fyrir okkur snýst þetta um að taka betri ákvarðanir þar sem hægt er án þess að gefa eftir á gæðum, þægindum eða útliti. Þannig getum við skapað sundföt sem þú elskar að klæðast, með minni áhrifum á umhverfið.
Afhverju gæði skipta okkur máli
Þegar ég fór af stað með NouNou var eitt sem ég vissi fyrir víst, ég vildi búa til sundföt sem endast. Ég hef sjálf keypt sundföt sem litu vel út á myndum en misstu síðan lögunina eða urðu gegnsæ eftir örfá skipti. Sundföt þurfa að þola meira en flestar aðrar flíkur, klór, saltvatn og sól. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á gæðaefni og vandaða framleiðslu, svo þú getir treyst því að sundfötin þín fylgi þér í fleiri en eitt sumar.
Meira en bara sundföt
NouNou er meira en bara sundföt, NouNou er samfélag.
Við búum til sundföt fyrir þær sem vilja líða vel, líta vel út og skapa minningar í þeim.
Velkomin í NouNou 🤍