Terms of service
Skilmálar NouNou ehf.
NouNou ehf. er íslensk netverslun sem sérhæfir sig í hönnun og sölu á sundfötum. Við leggjum ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi og persónulega þjónustu. Markmið okkar er að skapa einstaka verslunarupplifun þar sem fagleg vinnubrögð og ánægja viðskiptavina eru í forgrunni.
Verðin
Öll verð á vefsvæðinu eru gefin upp með virðisaukaskatti.
Afgreiðsla pantana
Greiða má fyrir pantanir með Teya greiðslugáttinni, Netgíró eða með beinni millifærslu.
Sé millifærsla valin, skal greiðslan berast inn á reikning NouNou ehf. innan 24 klukkustunda.
Kennitala: 600824-0150
Bankaupplýsingar: Banki 133 – Höfuðbók 26 – Reikningur 015483
Vinsamlegast sendið greiðslustaðfestingu á netfangið: nounouehf@gmail.com
Afhending vöru
Þegar greiðsla hefur borist, tryggjum við að varan verði póstlögð næsta virka dag.
Ef varan er ekki til á lager verður haft samband við kaupanda og gefinn upp áætlaður afhendingartími.
Hafi kaupandi valið afhendingu með Póstinum, ber NouNou ehf. ekki ábyrgð á afhendingartíma eftir að sendingin hefur verið afhent Póstinum.
Pósturinn sækir pantanir til okkar á öllum virkum dögum.
Sendingarkostnaður reiknast sjálfkrafa samkvæmt gildandi verðskrá Póstsins.
Skil og skipti
NouNou býður viðskiptavinum upp á 30 daga frest til að skila eða skipta vörum, að því gefnu að varan sé ónotuð og í fullkomnu söluhæfu ástandi. Réttur til skila eða skipta fellur úr gildi ef eitt eða fleiri af eftirfarandi atriðum eiga við:
-
Upprunalegar umbúðir vantar eða eru skemmdar
-
Flíkin hefur verið notuð eða merkimiði fjarlægður
-
Hreinlætismiði hefur verið fjarlægður eða átt við
-
Ummerki um andlitsfarða eru á flíkinni
-
Dýrahár eru á flíkinni
-
Lykt af svitalyktareyði
-
Ilmvatnslykt
Athugið:
Vörum sem keyptar eru á útsölu (lagerútsala) er hvorki hægt að skila né skipta.
Skil á sundfötum og nærfötum eru einungis heimil ef hreinlætismiði er enn til staðar og óskaddaður, vegna hreinlætisreglna.